Okey ég vissi ekki alveg hvar á huga ég ætti að spyrja að þessu þannig ég geri það bara hér.. ég er byrjuð að vinna á nýjum stað.. byrjaði í maí og er búin að kynnast fullt af skemmtilegum strákum og stelpum..Um það bil sem ég byrjaði í vinnuni fékk ég mér brúnar linsur með styrk í. Og ég er náttúrulega alltaf með þær svo ég sjái eitthvað.. svo var ég í heimsókn hjá einum stráknum um daginn og hann horfði á mig og sagði að ég væri með ótrúlega falleg augu og ég væri ekki mjög íslendingaleg í útliti því flestir væru með blá eða eitthvað.. og ég stífnaði upp og þorði ekki að segja honum að ég væri með linsur, þannig nú bara fuck sko nú get ég aldrei tekið úr mér linsurnar :S það væri eitthvað svo kjánalegt að segja bara “hey ég var með linsur allan tíman ég var bara að ljúga ” þannig ég svona vil eigilega bara vita hvað þið mynduð gera í mínum sporum.. ég er með grágræn augu..
“Don't play with bitches, they know how to play better”