tekið af http://visir.is/article/20080602/LIFID01/159400884 .

Þetta hér fyrir neðan er greinin í heild sinni fyrir þá sem nenna ekki að ýta á linka.


“Skiptir stærðin máli? var spurt í umræddri könnun og svörin létu ekki á sér standa.

Íslendingar virðast hafa mikinn áhuga á alls kyns könnunum og þess vegna ákvað Vísir að dusta rykið af níu ára gamalli könnun sem Ásdís Olsen annar þáttastjórnenda Mér finnst á ÍNN lét gera þegar hún ritstýrði tímaritinu 19. júní, sem er ársrit Kvenréttindafélags Íslands.

Að eigin sögn var hún með mjög stórhuga ritsjórn og réðst í alvöru rannsókn á kynlífi kvenna hér á landi en það hafði aldrei verið gert fyrr.

Ásdís Olsen er annar stjórnenda kvennaþáttarins Mér finnst á ÍNN. Þar eru umræðurnar mjög opinskáar og engu haldið aftur.

Rannsóknastofnun var ráðin til að gera rannsóknina. Hringt var í 800 íslenskar konur og þær spurðar hvað þær væru að fá útúr kynlífi, hvað þeim fannst og hvað þær vildu.

Viðbrögð kvennanna voru ekki alltaf á jákvæðu nótunum og þá kannski sér í lagi þegar spurningin: Skiptir stærðin máli? var borin upp.

Þegar spurt var hversu oft að meðaltali hefurðu samfarir?
4 til 7 sinnum á mánuðu sögðu 35,4 %
8 sinnum eða oftar sögðu 30,1 %
1 til 3 sinnum sögðu 24,8 %
aldrei sögðu 9, 6%

Spurt var hefur þú haldið framhjá?
23% sögðu já

Hvort finnst þér betra að vera með karlmanni með stóran eða lítinn lim?
20 % sögðust kjósa stóran lim
36 % sögðust vilja milðungs stóran lim
42% sögðu það ekki skipta máli
1,3 % sögðust kjósa lítinn lim.”