Ég var búin að vera með kærastanum mínum í 2 ar… Svo allt í einu núna um daginn vildi hann mig ekki. við höfum átt ups and downs en við höfum alltaf endað sjúklega ástfangin eftir smá. Tveimur klukkutímum áður en hann hætti með mér vakti hann mig með morgunmat í rúmið og sagðist elska mig svo mikið. Svo bara umturnaðist allt. Við erum búin að vera í sundur í mánuð núna. Versti tími sem ég hef upplifað. Ég var að enda með að tala við hann í símann þar sem hann eiginlega sagði að hann elskaði mig ekki lengur og við ætlum ekki að tala saman aftur.
Ég er búin að missa allt sem ég átti. Ég var búin að búa heima hjá honum með fjölskyldunni hans í rúmlega ár. Ég var búin að kynnast öllum vinum hans.. Svo var þetta bara tekið í burtu á tveimur klukkutímum. Han er búin að láta við mig síðustu daga eins og þessi tvö ar hafi ekki verið neitt. Eins og ég skipti engu máli og ég er svo sár.