ath!! þetta er í fyrsta skipti sem ég krota eithvað á /rómantík so be gentle :)

þannig er mál með vexti að ég fór að hafa samband við stelpu aftur sem ég hef þekkt alveg síðan ég var púki og hef ekki haft neitt svakalegt samband við fyrr enn akkúrat núna þessa dagana. Eins og gefur að kynna þá er ég orðinn alveg klikkað hrifinn af henni og ég hugsa eiginlega ekki um neitt annað en hana.

ég er búinn að segja henni hvernig mér líður og hún er eiginlega á sama máli. við eyddum heilli helgi saman og allt var að virka og allt virtist mjög rétt enn núna um daginn sagði hún mér að hún væri að fara að flytja erlendis og hún vissi ekki í hvað langan tíma. Eftir það er ég búinn að vera alveg niðurbrotinn og ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera.

öll hjálp þegin nema það sem inniheldur skítköst. :)