Með Þér - Halli Reynis

Með þér, vil ég falla inní fjöldann
og finna hjartslátt lífsins eins og hann er.
Með þér, vil ég ævinni eyða
og upplifa hamingjuna eins og hún er.

Þegar dagurinn vaknar eftir næturhvíld
og geislar sólarinnar leika sér -
vil ég vera,
vil ég vera með þér.

Með þér, hvert sem leiðirnar lyggja
á lúmskum vegum veröldinni í
Með þér, verður himininn heiður,
svo horfi ég á framtíðina glaður á ný.

Þegar dagurinn vaknar eftir næturhvíld
og geislar sólarinnar leika sér -
vil ég vera
vil ég vera með þér.


Ég elska þetta lag, eflaust með fallegri íslenskum lögum sem ég hef heyrt.
Og það eina sem kemst í huga minn þegar þetta lag heyrist er yndislegi kærasti minn <33
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"