góðan daginn! ég var að pæla í að sníkja smá hjálp frá hugurum á /romantik margir eiga eftir að hlæja að þessu og ekki ætla ég að móðgast yfir því þar sem mér finnst þetta sjálfum mjög ironic en geriði það í staðinn fyrir að koma bara með einhver skítköst eða aulabrandara komið með eitthvað sem vit er í amk segiði hvað þið mynduð gera í mínum sporum.

Ok here I go:


ég er í framhaldsskóla í reykjavík og þetta er önnur önnin mín í þeim skóla (tek það fram að ég er busi þannig ég hef ekki verið í neinum öðrum menntaskóla áður)

Um það bil sem ég byrjaði í skólanum þá tók ég eftir því (eða það kom amk þannig út) að ein stelpan þarna (sem að er alveg heavy myndarleg að mínu mati) var dáldið að horfa á mig og sýndi mér talsverðan áhuga og ég sýndi á móti og ok allt í fína með það.

Heyrðu svo komst ég að því að hún er eineggja tvíburi! Og ég hef séð þær báðar saman ég sé þá smá mun á þeim en ekki þegar þær eru
í sitthvoru lagi.

Og þetta var um það leyti sem að ég ætlaði að reyna að kynnast henni eitthvað og kannski reyna að mynda smá vinskap við hana.

Og svo stuttu þegar liðið var á miðja önnina þá kom annarhvort tvíburinn(er ekki viss hvor) og bað mig (alveg hiklaust ef þið fattið hvert ég er að fara) um að fylgjast með dótinu fyrir sig meðan hún skryppi fram og ég sagði bara já ekkert mál.

Svo var hún svona 3 min að þessu og svo sagði hún mér bara með augnaráðinu “þú mátt hætta að fylgjast með núna”.

Þá hélt ég bara áfram með það sama og ég var að gera.

Svo c.a. hálfum mánuði eftir að þetta gerðist, þá var stelpa sem ég kannaðist við, að sýna mér vídjó sem hún hafði verið að búa til(eitthvað sona teiknimynda-dæmi) og við ætluðum bara að finna pláss til að plögga hleðslutækið í fartölvunni sem hún var með.

Og við sátumst bara i næsta sófa sem var við hendina og báðum stelpuna sem sat við hliðina á okkur (og það vildi svo skemmtilega til að það var annahvor tvíburinn) um hvort að hún gæti tekið sína fartölvu úr sambandi í stutta stund þar sem okkar var batteríslaus en hennar fullhlaðinn,

og hún sagði sona hálffeimnislega “já” (ekki það að henni hafið fundist það eitthvað mál að við værum að biðja hana um þetta). Og síðan bara horfðum ég og þessi stelpa sem ég kannaðist við á þetta vídjó og bara fórum síðan (ekkert meira með það).

Svo fór að fjölga skiptunum sem ég sá systurnar saman og var ég þá svona að reyna að horfa á hvor systirin væri hvað (þar sem að það var alltaf önnur hvor þeirra sem gaf mér hálfgert augntillit) og sýndist mér það vera yngri systirinn.

(án þess að ég sé eitthvað að halda því fram að hún sé yngri en hún bara lítur út fyrir það en allaveganna þá samt sá ég sirka abát út hvor er hvað) sem hálfblikkaði mann þegar maður gekk fram hjá (ég tek það fram ég sagði “hálf” hún horfði bara þannig á mig að hún gæti stundum alveg eins blikkað mig ).

svo á þessari önn þá hef ég bara séð tvisvar í aðra hvora manneskju (hef ekki getað greint hver þetta er vegna þess að hún hefur alltaf verið á hlaupum í tíma) og hún hefur ekkert horft á mig frekar en einhvern annan.

-mig langar að spyrja ykkur:

mig langar svakalega til að reyna að kynnast þessari manneskju betur (ég veit ekki hvort ég sé “hálf” hrifinn af henni ég held samt ekki held bara að það sé bara,mér finnst hún virkilega charming).

Ég held líka partur af því að ég hef ekki séð hana lengi það er af því ég er alltaf í verklegu álmunni en hún alltaf í álmunni þar sem að bóklegu tímarnir eru.

En svo er ég að fara færa mig yfir á félagsbraut á næstu önn og þá er ég að vonast til að hitta hana kannski oftar en ég er búinn að gera.

En það sem er að trufla mig er :

hvað ef ég færi að höstla vitlausan tvíbura??!!

-gefið mér smá ráð ég er amk alveg ráðalaus!