ókei þannig er málið að fyrir áramót átti ég fuckbuddy sem ég var ógeðslega hrifin af en það var víst bara þannig að ekkert meir mundi gerast…svo seinna hitti ég strák sem mér fannst vera alveg æðislegur svo ég svona hætti að hitta strák1 því ég vildi ekki vera að gera eitthvað með 2 strákum í einu…auk þess særði strákur1 mig soldið en það skiptir ekki máli. jæjja fyrir svona sirka mánuði eða eitthvað byrjaði ég og strákur1 aftur að svona já sofa saman og ég fann hvað ég saknaði hans og fannst við alveg geta verið BARA fuckbuddys. svo gerist það að ég fer á ball og búin að drekka slatta, aðeins of mikið, og labba bara inná ballið og nei er ekki strákur1 dyravörður þar og ég bara voða kát og knúsa hann og hann bara hlær og svona:) voða gaman:P svo seinna fer ég bara að dansa og dansa við einhvern strák, lendi víst með honum inná baði og já við vorum bara að leika okkur (sváfum ekki saman) þegar það koma svona dyraverðir og opna hjá okkur. seinna fer ég aðeins upp og sé strák1 og heilsa honum og tala aðeins við hann, stuttu seinna kemur stelpan sem labbaði inná mig og hinn strákinn og segir eitthvað svona haha ég labbaði inná hana vera að ríða! og hann verður frekar fúll og bara ógeðslega skrítinn og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera en neitaði þessu samt og svo fór ég bara með vinkonu minni að dansa. eftir smá stund á dansgólfinu kemur strákurinn sem ég fór með inná bað og byrjar að dansa við mig og ekkert mál. ég lít síðan svona upp og sé að dyraverðirnir eru að fylgjast með fólkinu og strákur1 er að horfa á mig og verður svona smá fúll og þannig, labbar stundum í burtu og kemur svo aftur og já.
daginn eftir leið mér hörmulega! því mér þykir óendanlega vænt um hann og þegar ég fór á msn talaði hann ekkert við mig og ég svona veit ekkert hvað ég á að gera! vil alls ekki hætta að vera vinkona hans og finn fyrir smá hrifningi:( ég vil geta sagt við hann að ég svaf ekki hjá stráknum og svona vita einhvernveginn afhverju hann var svona fúll og þannig:( málið er að við höfum aldrei talað um samband svo þetta gæti orðið smá skrítið:S

endilega segið ykkar skoðun á þessu!
Sandy ;)