Ég sá hana þennan fagra morgun
Augun öll svört og hárið allt úfið
En sama hvað, þetta bros ég gat ekki flúið

Hún hafði þau áhrif sem ég hafði ekki fundið fyrr
Eitthvað sem sagði við mig “vertu kyrr”
Hún hjartað mitt greip, og ég um hennar held

Og sama hvað, ég mun ekki sleppa þessari ást.

Og er ég vakna núna, og sé hana brosa
Falleg en samt með málninguna útá kinn
nú í fyrsta sinn, ég fyrir ástinni finn

Og nú eru liðnir nokkrir mánuðir og einhverjir dagar og örfáir klukkutímar og við erum ennþá saman.
Þrátt fyrir mistök og tár, þá veit ég það uppá hár

Að ég þessari stúlku hjartað mitt gaf.




gamall texti eftir mig….og já, ég er stelpa, og já, þetta er samið frá sjónarhorni stráks….
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"