Ég ætla fara tala um þessa stelpu sem er búin að vera hrifin af mér í um það bil 7 mánuði!

Þessi stelpa er 15 ára og ég er 16 ára en við erum fædd á sama árinu, hún hefur spurt mig hvort hún væri sæt og allt það og ég segi bara sannleikan, hún spurði ‘'er ég sæt’' og ég auðvitað sagði ‘'nei’', svo í dag er hún og frænka hennar að tala við mig á msn og þá segir frænka hennar ‘'því ertu svona leiðinlegur við hana?’', ég er bara vera hreinskilin og hata þegar stelpur spurja um svona spurninga, þótt ég hafði verið einstöku leiðinlegur við hana hefur hún verið mér sem hreinasta helvíti!

Allt í lagi, hérna kemur þetta, ég hef reynt að losna við hana í marga mánuði, ég hef sagt henni að hún ætti ekki séns í mig, ég laug að henni að ég ætti kærustu og lét meira segja einn(rétt skrifað það var strákur) tala við hana á msn sem kærustuna mína, samt heldur hún áfram, ég veit ekki hvað oft ég hef sært hana bara til þess að losna við hana, samt heldur hún áfram og ef ég blocka hana á msn þá fer frænka hennar að væla í mér svo ég fæ ekki frið á msn og fer núna eiginlega ekki inná, svo þekkir hún frænda minn sem hefur símanúmerið mitt og hún byrjar að hringja og senda sms en sem betur fer ekki oft.

Svo þegar ég og frænka hennar ákvöðum að fara í bíó þá varð hún geðveik fúl og þurfti að koma með út af því hún var svo hrædd að ég myndi fara reyna við frænku hennar, svo þegar ég hitti hana þá gat hún ekki sagt orð við mig, svo í dag bauð hún mér í party í næstu viku og þar verður áfengi en ég sagði nei, út af því ég hafði heyrt að hún reyndi að klæða stráka úr fötunum þegar hún er full og fyrst ég sagði ‘'nei’' þá byrjaði hún að hóta um að drepa frænku sína, er þessi stelpa eitthvað í ruglinu!

Meina ég tel þetta sem barnaskapur í henni að láta svona, vona bara það séu ekki fleiri stelpur svona, vonandi koma einhverjar snildar hugmyndir frá ykkur til að ég geti losnað við hana, svo ég segi eitt í lokin ‘'Að vera sætur er ekki dans á rósum fyrir alla’'.