Það er svo margt sem mig langar að segja við hana.

Ég vildi að ég þyrði að hringja í hana og spyrja hana hvort hún vildi koma í bíó eða eitthvað.

Ég vildi að ég þyrði að segja allt það sem mér finnst um hana, við hana.

Ég vildi að hún væri ekki alltaf svona mikið upptekin, mér finnst ég aldrei geta komist að, ef ég myndi taka sporið.

Ég er hræddur um að ég eigi aldrei eftir að sjá hana aftur eftir menntaskólann.

Seinast þegar að ég var hrifinn af stelpu, þá gerði ég ekkert í því og ég sá hana aldrei aftur eftir 2. árið.

Mig langar ekki að það gerist aftur.


Ég vildi að ég væri ekki svona feiminn.