mér líður ömurlega og vantar smá hjálp ég er 18 ára gaur og er búinn að vera með stelpu í hálft ár og ég er svo hrifin af henni get ekki hætt að hugsa um hana.

En fyrir 2 dögum kom ég að henni í skólanum og þá var hún að kyssa gaur sem er 2 árum eldri. ég hélt að það ætlaði að líða yfir mig núna er ég búinn að vera heima með brotið hjarta og langar svo að hitta hana aftur. mér finnst ég vera svo einmanna og ég veit ekki hvað ég á að gera. ég er hræddur um að ég verði aldrei hamingjusamur aftur.

besti vinur minn var að tala við mig í gær og hann var að segja mér að hann væri byrjaður í sambandi og þá leið mér enn verr finnst eins og ég sé að missa samband við alla mína bestu vini. hvað á ég að gera.
keep it safe, keep it sexy