Var að lesa færsluna hjá sykurepli og vá hvað ég skil hana!

þetta verður smá ritgerð hjá mér um allt síðastliðið ár en skal vanda mig eins og ég get. Er ekki mjög góð í að segja sögur.

Sko.. fyrir ári síðan þá kynntist ég fyrrverandi kærastanum mínum (erum nyhætt saman). Allt var alveg frábært þangað til í júní, þá sagði hann við aðra stelpu að hann elskaði hana og ég komst að því og að sjálfsögðu þá var ég mjög sár en ég fyrirgaf honum það.

Svo varð ég ólétt. Ég vildi eiga barnið en þar sem hann á 2 fyrir þá var hann ekki tilbúin í annað þannig að ég fór í fóstureiðingu. áður en aðgerðin var gerð þá sat hann hja mér og ég bað hann um að lofa mér því að vera þarna þegar ég vaknaði og hann lofaði mér því. Þegar eg vaknaði var hann ekki þar. þannig að eg fór fram og hringdi í hann. Nei Nei hann er bara a rntinum með vini sínum og þeir eru að fá sér að borða.. þannig að eg hugsaði.. æji hann hefur orðið svangur.. allt í lagi með það en ég bað hann um að flyta ser þar sem eg mátti ekki keyra eftir aðgerðina og hann með bílinn okkar og var ekki aæveg að meika að bíða uppá spítala þar sem ég var nú voðalega lítil í mér og vildi komast heim sem fyrst. ég beið í hálftíma og ennþá var hann ekki komin. Þannig að ég hringdi aftur í hann. Þá var hann bara að keyra einn laugarveg og á leiðini að taka bensín. þá varð eg soldið sár og æsti mig aðeins og bað hann um að flyta sér.. ég beið í 20 mín i viðbót og meikaði ekki að bíða lengur og labbaði heim.
Hann lét ekki sjá sig alla þá helgi og var bara skítsama um hvernig mér leið.

Eitt kvöldið þá vorum við að rífast. ég var bara heima og hann með strakonum niðrí bæ. ég átti soldið erfitt með að treysta honum eftir að hann sagði við þessa stelpu þarna að hann elskaði hana og það bull. eníveis.. hann var eitthvað skrítinn í símanum og sagðist ætla að gista hja þessum vini sinum og vildi ekki að eg mundi koma að sækja hann þannig að við fórum að rífast utaf því og eg spurði hvort hann væri ekki bara að halda framhjá mér. Þá segir hann við mig að viðhaldið hafi meiri tíma fyrir hann heldur en ég. Ég auðvitað fékk sjókk. Elskaði hann svo ótrúlega mikið! ég grét og grét og hélt að þetta væri bara mér að kenna. ég hafði lítinn tíma fyrir hann þar sem eg vinn a kvöldin en reyndar bara 3 daga vikunnar. En svo sagði hann bara að hann hafi verið að djóka og kom heim og sagði vð mig að hann hafi ekkert verið að meina með þessu og eg svona já allt í læj.

svo nuna rétt fyrir jól þá kom svipað dæmi uppá þannig að ég sagði bara hingað og ekki lengra ég er búin að fá nóg!!! Og við hættum saman. En svo kynntist ég strák. alveg æðislegum strák og við byrjuðum að deita og minn x komst að því. reddaði númerinu hjá kauða, hringdi í hann og Sagði að ég og hann værum ennþá að reyna og eg hafi sofið hja honum á gamlárs ( sem er ekki satt ) og þessi strákur fékk bara sjokk og sagði við minn x að hann ætlaði þá ekkert að vera að blanda sér í okkar mál!!.. þúst.. hvað er málið?? Hann er snargeðveikur!! maður gerir ekki svona.. og nuna vill þessi strákur ekkert með mig hafa og hatar mig meir en allt og heldur að hann hafi bara verið eitthvað viðhald eða smá spenna inn í mitt líf… Alls ekki. mig langar svo að kynnast honum meira en ég get það ekki núna þar sem x er búinn að rústa því með því að ljúga að honum. Ég er sammt búin að vera að reyna að útkyra fyrir honum þetta allt saman en hann er ekki að trúa mér. ég sagði við hann að eg er með vitni heima hja mer sem getur staðfest að ég var heima og að eg og x séum hætt saman.

Mig langar svo rosalega að kynnast þessum strák betur útaf því að mér líður vel með honum, fynn fyrir öryggi sem eg hef aldrei fundið fyrir áður, við skemmtum okkr vel saman og hlæjum af fáranlegustu hlutum, hann er fyndinn, myndarlegur og er bara æðislegur í alla staði.

Hvað a ég að gera? :'( ég vill svo alls ekki missa þennan strák. æj já ég er búin að því en hvað get ég gert til að fá hann aftur. og hvað get ég gert til að x fari ekki að ráðast svona inn í mitt einkalíf. ég get ekki sagt neinum vinum minum neitt um neitt utaf því að það eru vinir hanns x líka og er svo hrædd um að þeir missi eikkað útúr sér og hann eiðileggi allt fyrir mér aftur…

Æj vá það er allt svo í fokki og eg er svo ringluð og mér líður eins og ég sé fangi sem á bara að sitja heima hja mér og gera ekki neitt..

fyrirfram þakki