Ég elska þig heitar en orð geta tjáð
tár mín svo frosin, orð mín svo tóm
þögul og brennandi heit er mín ást
Ég man er ég leit fyrst í augun þín
vitandi allt….

Já ef steinar og jörð gætu talað sagt frá
sporum í sandi frá liðinni öld
Kveðjum og heitum um eilífa tryggð
Ég veit, ég hef elskað þig áður
og elska þig enn

Það var ást við fyrstu sýn
Það var ást við fyrstu sýn

Tíminn stóð í stað
og um hverfið hvarf
allt varð svo hljótt
Veröld sem svaf…vaknaði
tindrandi björtum augum mig leit

Við eigum svo undurvel saman við tvö
skiljum hvort annað og heiminn svo vel
Sálir sem hittast og heilsast á ný
því ég veit ég hef elskað þig áður
og elska þig enn

Það var ást við fyrstu sýn
Það var ást við fyrstu sýn

Tíminn stóð í stað
og umhverfið hvarf
allt varð svo hljótt
Veröld sem svaf….vaknaði
tindrandi björtum augum mig leit

Það var ást við fyrstu sýn….


var að setja þetta lag inná iTunes-ið og ákvað að skella textanum hingað…..svo fallegt lag <3
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"