Hér er enn annar jólagjafakorkurinn. Mig vantar hjálp við að finna einhverja “íslenska” jólagjöf handa kærustunni minni. Hún er 22 ára, Bandarísk og býr úti.

Ég er búinn að kaupa föt sem ég ætla að gefa henni en ég vil gefa henni eitthvað séríslenskt líka, en ég hef ekki fundið neitt sem væri góð jólagjöf. Það eina sem ég hef komið upp með er Blár Ópal, en hann er ekki til lengur. :)

Hafið þið einhverjar hugmyndir?

Bætt við 22. desember 2007 - 16:00
Veit ekki með geisladisk, hún er hlustar ekki mikið á tónlist, og er nokkuð vandlát þegar að því kemur. En ég mun eflaust taka eitthvað nammi með mér. Langar samt að finna eitthvað sem er ekki “einnota.” :P
___________