Okei , ég er núna búin að vera með stráka í næstum 9 mánuði ! En áður en ég byrjaði með honum eða þekkti hann þá var hann með stelpu í 11 mánuði en þau hættu saman af því að hún hélt frammhjá honum .

Allavegan þegar við vorum bara nýbyrjuð saman þá byrjar þessi stelpa með vini mínum . Ég bara okei ekkert mál en svo heldur hún frammhjá honum líka og hann hættir með henni . Eftir það þá finnst mér eins og þau sé að tala saman en pæli ekkert þannig í því . Svo nokkru seinna fer hann í kringluna með “vini” sínum en stuttu seinna frétti ég að hann hafi farið með henni . Mér hefði verið frekar sama að hann hafi farið með henni bara af hverju að ljúga af mér ?

Núna í gær erum við að rúnta með vini hans þá fær hann sms og segir að það sé frá vini sínum en ég sé á símann að það sé frá henni . Þannig að þegar við komum heim spyr ég hann út í af hverju hann hafi verið að ljúga .. Þá fer hann að afsaka sig einhvað og segir að það sé af því að hann veit að það pirrar mig að hún sé að tala við hann . Hún sé bara að tala við hann til að fá hann til að skutla sér og hann myndi aldrei gera það ofl. Svo seinna um kvöldið fer ég bara uppúr þurru að fikta í símanum hans og sé að það eru sms frá henni og það er bara elskan mín og eikkað.. Og kemst að því að hann hefur verið að skutla henni um bæjinn og þau eru búin að vera að hittast . Svo þegar ég tala við hann um þetta þá segir hann að hann hafi ekki sagt mér þetta af því að hann vissi að það myndi láta mér líða illa .

En ég meina mér hefði liði miklu betur ef hann hefði bara sagt það um morgunn í staðinn fyrir að ég hefði þurft að komast að því svona að hann hafi verið að ljúga af mér . hvað á ég eiginlega að gera ?