Nú standa mál þannig að ég hef verið að hugsa um að bjóða stelpu á kaffihús, en þá kom upp það vandamál hjá mér að ég þekki lítið sem ekkert til kaffihúsamenningar á höfuðborgarsvæðinu. Þá datt mér í hug að spyrja hugara ráða.
Ég er semsagt að leita að einhverju góðu kaffihúsi þar sem er helst frekar róleg stemning og hægt að tala saman.
Mér datt í hug Hljómalind, en nú er svo langt síðan ég kom þangað síðast að ég er ekki svo viss um aðstæður þar.

Með von um góð svör,
Euphoria
Autobots, roll out.