Ég veit ekki alveg hvor þetta á heima á þessu áhuga máli eða hvort þetta sé eitthvað vandamál en ég ætla að láta þetta flakka.

Það sem kemur hérna á eftir er allt satt, og það væri gott ef þið myndið bara svara af fullri hreinskilni. Takk.

Ég er s.s. strákur og vandamálið mitt er hvernig ég tek næsta skref við stelpur, það er ekki neitt mál ef þær eru búnar að fá sér að drekka en ég hef engann áhuga á því að reyna bara við einhverja drukknar stelpur, er að reyna að lenda sambandi. Á ekki í neinum vandræðum að tala við stelpur, en það endar einhverveginn altaf með því að ég verð bara vinur. Var að skemmta mér um daginn og hitti tvær stelpur sem ég þekkti eitthvað örlítið og reyndi eitthvað smá við þær og gekk það bara mjög vel, en ég veit ekki, þori einhvern veginn ekki að stíga næsta skref.

Hvað á ég að gera, allir vinirnir eiga ekki neinum vandræðum með þetta og mér líður alltaf jafn illa þegar þeir eru að pressa á að maður gangi lengra.

Takk fyrir.