Hæ ég er strákur sem að er hrifinn af einni stelpu, ég er ekki viss um hvort að hún sé hrifinn af mér en ég hef samt stundum fundist eins og henni fynnist gott að hafa mig í kringum sig eða þannig.

Ég var búin að leita og leita hérna í “Vandamálum” af svona hlutum en mér fannst ég aldrei hafa fundið nógu gott svar, Margt bara “Já kýldu á það kallin og bjóddu henni út” eða “Segðu henni það” En vandamálið er að ég er algjör skræfa og svo er ég líka frekar í þykkari kanntin (if you know what a mean) en ég er ekki viss um að henni líkar það.

Ég væri til í að gera nánast hvað sem er til að fá að vera með henni eða mjög nánir vinir en ég er ekki viss um hvort að hún viti það, eða þá hvað hún gerir ef að hún kemst að því.

ef þið hafið góð svör getiði þá gefið mér þau?


Ein spurning sem að tengist þessu ekki á neinn hátt og mun aldrei gera það. Hvað fynnst ykkur um ef að maður myndi semja lag um einhverja stelpu og gefa henni það svo (upptekið og skrifað á disk eða þá að spila það fyrir hana.)???

En já efri spurningin var aðalspurningin