Vinkona mín er semsagt í sambandi með þessum líka fína gaur.
Málið er samt að þrátt fyrir þessa mánuði sem þau hafa verið saman sýnir hann henni afskaplega lítinn áhuga..
Hann hringir svo að segja aldrei í hana eða smsar. Hún lendir alltaf í því að þurfa að ná í hann svo þau geti hist.
Plús, þegar ég sé þau saman á meðal fólks eða bara almennt, þá á ég frekar erfitt með að sjá að þau séu par. Fleiri sem ég þekki segjast hugsa það sama. Það er eins og hún sé bara e-ð hentugt til að grípa í fyrir honum..

Spurningin er þá, hvað í fja*****m á ég að segja við hana? Mér finnst svo erfitt að horfa upp á hana skemma sjálfa sig svona með þessu :(


btw.
Hún talaði meira að segja um þetta við hann, en hann var bara alveg clueless! Þó hún sagði við hann að þetta væri ekki eins og samband hefur ósköp lítið breyst síðan þá..