Ok ég er ekki beint sú grannasta í heimi og með aukakíló á mér. Tel mig samt vera með góðan húmór og ágætan persónuleika og hef oft heyrt aðra segja það um mig, nett flippuð og svoleiðis. En varðandi útlitið, já ég er svolítið þybbin.

Svo ég ætlaði að spurja ykkur karlkynið hvort að þið fókusið bara á útlitið? Ég meina þarf ég að vera mjó til að eiga eitthvern séns?

Ákvað að spurja núna vegna þess að mér líkar svo vel við vin vinkonu minnar :] Skemmtilegasti persónuleiki sem ég hef kynnst og hann hefur álíkan skrítinn húmor og ég en málið er að hann er örugglega way out of league eins og það er sagt :(