Ég er nýhættur með kærustunni minni. Ég var búinn að pæla gera það í einhvern tíma og hélt að það væri það rétta og að mér myndi líða miklu betur ekki í sambandi en í því. Svo þegar ég sagði þetta við hana “ég held að við ættum að taka pásu” þá leið mér ömurlega, að horfa á stelpuna sem ég elska gráta svona mikið. Þannig ég helt utan um hana allt kvöldið meðan hún grét og grét. Gerist þetta hjá mörgum sem hætta með einhverjum sem þeir elska?