Jæja þannig er mál með vexti að ég hætti með minni fyrrverandi núna fyrir 2-3 mánuðum síðan.. allt í góðu með það og við bara ákveðum að vera vinir… Jæja svo fyrir einhverjum mánuði síðan segir hún mér að hún sé byrjuð með öðrum strák og mér fannst það bara allt í fínasta lagi og gott hjá henni. Er sjálfur farinn að slá mér upp með annari stelpu og var meðal annars með mynd af mér og þessari sem ég er að slá mér upp með inná msn, bara sæt flott mynd og allt í góðu.. Jæja svo kemur hún online og spyr mig hver þetta sé á myndinni. Ég segi henni bara að þetta sé stelpa sem ég sé að deita og við séum orðin frekar náin.. En já þá STEIN hættir mín fyrrverandi að tala við mig og hefur ekki gert það síðan. Ég meina við hættum saman í góðu, hún var kominn með annan kærasta mánuði áður en ég var farinn að deita aðra stelpu og hún var búin að segja mér það fyrir mánuði síðan. En svo þegar ég er sjálfur kominn með aðra stelpu uppá arminn þá bara hættir hún að tala við mig. Skiljiði þetta :) mér finnst stelpur alveg stórkostlegar oft á tíðum. Mér fannst bara í góðu lagi þegar hún sagði mér að hún væri byrjuð með öðrum. en svo þegar ég tek í sama streng þá bara hættir hún að tala við mig. Skil þetta ekki :) mér finnst þetta í raun bara fyndið.
Cinemeccanica