Allavega þá er ég farinn að spá svolitið í einni stelpu í skólanum mínum. Horfi stundum á hana í skólanum og sé að hún lítur stundum á mig. Mig langar allavega að kynnast henni betur. En þá kemur stóra hindrunin. Besta vinkonan hennar sá einu sinni ekki ljósið fyrir mér og var þvílikt hrifin af mér lengi en ég var því miður ekki sama sinnis og það særði hana töluvert. Þannig ég veit ekki hvort það sé réttast að fara reyna við vinkonu hennar. Gæti það líka verið líklegt að hún sé búin að vera segja einhverja slæma hluti um mig við stelpuna sem ég er að spá í ?

Ég veit ekki hvort ég þori að meika múv.