ókei sko þannig er málið að ég og vinkonur mínar kynntumst strák fyrir nokkrum mánuðum og við höfum svona verið að hittast af og til og svona. en já svo gerist það að vinkona mín verður hrifin af honum eftir eikkað smávegis og ég viðurkenni það að ég varð pinku fúl því auðvitað fanns mér hann líka sætur en ég ætlaði samt að styðja hana fullkomnlega í þessu og svona. já síðan gerist ekkert hjá þeim og þannig hún hættir að vera hrifin af honum en finnst hann samt geðveikt sætur og er alveg til í að gera eitthvað með honum. en nokkrum dögum seinna fór ég að spjalla svona meira við hann og hitti hann ein og svona og þegar við hittumst þá var alltaf svona augnarsambönd og já og eitthvað þannig í gangi en það gerðist ekkert neitt mikið (var líka að passa mig á því). eftir þetta fer ég svona að spá meira í honum en ég vildi ekki viðurkenna það að ég vildi eitthvað meira því mér fannst ég vera ömurleg vinkona! nokkrum dögum seinna fer vinkona mín til útlanda bara svona óvænt og verður þar í 3 vikur.
síðan hitti ég hann um helgina (föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn) og já það gerist svona frekar mikið í hvert skipti sem við hittumst og já en það mesta á sunnudeginum, vorum bara svona að kela og eitthvað.
Ég sagði náttla hinum vinkonum mínum og ég er búin að vera ekkert smá rigluð núna útaf þessu því ég vil ekki missa þessa vinkonu mína en ég vil heldur ekki missa hann því mér hefur aldrei liðið svona í sambandi við strák og í alvöru ég hef ekki verið svona hrifin af neinum áður! og alltaf þegar ég er með honum þá er ég ekkert stressuð og mér lýður alltaf geðveikt vel og ég hugsa ekkert um vandamálin heima eða neitt, það er eins og ég fer í einhverskonar sælu vímu (veit hljómar ógeðslega hallærislega en get bara ekki lýst þessu betur) en auðvitað mundi ég ekki gera neitt ef hún væri eitthvað á móti því en það er málið veit ekki hvernig ég á að segja henni þetta þarsem hún er ekki á landinu og ég næ bara í hana í gegnum msn og e-mail og ég vil ekki býða með að segja henni þetta til öryggis ef eitthvað meira gerist:S svo bara rétt áðan brotnaði ég algjörlega niður útaf þessu og mamma spurði mig hvað væri að og ég sagði henni að mér fyndist ég vera hræðileg vinkona því ég væri geðveikt hrifin af strák sem þessi vinkona mín er hrifin af og mamma sagði mér bara að vera ekkert að pæla of mikið í því vegna þess að þetta snýst ekki um hana heldur um mig og eitthvað en ég bara veit ekki alveg hvað ég á að gera! vil ekki missa hana sem vinkonu og tými ekki að sleppa honum því mér lýður svo vel með honum :S:(

Takk fyrir lesturinn og endilega koma með ráð ef þið getið :) ég vil samt ekki fá eitthver skítköst!
Sandy ;)