ég elska kærustuna mína meira en allt annað í heiminum og seinasta vetur ætlaði ég að vera aðeins skemmtilegur við hana og senda henni rómó og sætt og smá dirty sms þar sem að ég skrifaði hvað ég elskaði hana útaf lífinu og langaði að vera hjá henni og kannski aðeins að gera jiggy jiggy svo sendi ég það en fæ ekkert svar til baka og fannst það frekar skrítið svo ég ætlaði bara að spurja hana daginn eftir í skólanum en hún sagðist ekkert kannast við það að hafa fengið þetta og ég er síðan ekkert að spá í það fer síðan í tíma og kemnnarinn vill ekkert hjálpa mér í tímanum kemur ekkert til mín þegar ég bað um það og í endann á tímanum biður hann mig að vera eftir og svo spyr hann mig af hverju í andskotanum ég hafði verið að senda sér þetta sms í gær, þá er hann næsti á eftir henni í símaskránni í símanum mínum.


ég verð að segja það að þetta er það vandræðalegasta sem að ég hef lent í og BTW þetta er karlmaður

Bætt við 7. ágúst 2007 - 01:18
endilega deila svona sögum ef þið eigið þæ