Hmm.. það er svolítið glatað þegar maður hefur ekki verið í sambandi með strák nema í mánuð þegar hann segir manni upp og er ástæðan að hann hrifinn af annari stelpu:S Því að þá væri frekar stutt síðan hann varð hrifinn af stelpunni þegar hann er búinn að vera með manni í bara mánuð er það ekki? Eða hvað, hrifinn af manni svona viku af sambandinu og svo pínt sig til að vera 3 vikurnar því er hann hrifinn af hinni stelpunni eða hvað?? Ég skil þetta ekki… Hann hefur bara pottþétt ekki nennt að vera í sambandi. Er það ekki? Vitiði það, að fólk segir að stelpur séu flóknar.. strákar eru flóknir! eða við erum öll flókin eða auðveld. Það sem mér finnst bara leiðinlegast er að hann vissi ekki einu sinni hverju hann var að hafna þegar hann var strax búinn að finna sér aðra til að hugsa um. Vild ég gæti bara sagt honum að þetta gengur ekki þannig:) Sammála?

Bætt við 4. ágúst 2007 - 23:54
Æj ég hefði ekki átt að skrifa þennan kork….