Ég var ekki viss hvar ég ætti að setja þetta svo ég setti þetta bara hérX)

Í þeim samböndum sem ég hef verið í þá hefur það alltaf lent á mér að segja upp og særa….
og var ekkert öðru vísi í seinasta sambandi mínu…nema að núna er ég með samviskubit, en það hef ég aldrei fengið áður!
Og spurningin er, hvort ég eigi að hafa samband við minn fyrrverandi og segja fyrirgefðu hvað ég var mikil tík eða???
svo er málið að ég veit ekkert hvernig honum líður :/
hvort hann er eitthvað leiður út í mig enn þá eða búinn að jafna sig(hætti með honum fyrir 1 og hálfum mánuði).

Hér sit ég og bíð eftir svari eitthverns sem hefur vit og þor til að svara mér:|