…finnst ykkur að ef stelpa sefur hjá strák á fyrsta stefnumóti, að hann missi áhugann á henni?

Og ef strákur hefur bara samband þegar hann er í glasi, er hann þá ekki bara á höttunum eftir kynlífi? Eða lýsir það meira mjög lágu sjálfstrausti?

Endilega komið með góð svör. Við vinkonurnar erum búnar að vera að ræða þetta í bak og fyrir :)

Bætt við 13. júlí 2007 - 00:53
Já, ég bæti við að ég er alls ekki að segja að þetta eigi bara við um stráka. Auðvitað eru stelpur svona líka.