Hæjj!!!

Sko… einu sinni var ég með strák sem var mjög skemmtilegur, fyndinn og flottur en hann var líka player og ég vissi það alveg þegar við byrjuðum saman… ég bara féll fyrir honum og ég get ekkert gert í því, en hann var minn fyrsti(fyrsti kossinn og það)… en allavega, eftir 2ja mánaða samband þá byrjaði hann að forðast mig og ekki hringja og bara alveg hundsa mig. Og eftir svona mánuð (ég grét mig í svefn eiginlega á hverju kvöldi) þá loksins talaði hann við mig til að segja mér upp og sagði að við yrðum bara mjög góðir vinir… þá leið mér miklu betur en hann stóð ekki við þetta að vera góðir vinir því við töluðumst ekki við hvort annað í ár… ég var mjög reið við hann en svona er þetta…

Einu ári seinna (sem sagt núna) þá byrjaði hann að tala við mig aftur og við erum bara orðin mjööög góðir vinir… tölum saman á hverju kvöldi eiginlega en svo gerðist það að við vorum að horfa á mynd heima hjá vini okkar og ég og minn x erum eiginlega að dúlla okkur soldið mikið, kúra og svoleiðis… en samt gerði hann ekki neitt (kyssa mig eða eitthvað) sem mér fannst soldið skrýtið en allt í lagi… svo þegar hann er að skutla mér heim þá sagði hann mér að hann vilji ekki byrja með mér strax af því að besti vinur hans (og minn) er hrifinn af mér og hann vildi ekki særa hann… svo er líka ein stelpa sem ég þekki ágætlega (erum ekki bestu vinir en erum vinir) sem er hrifin af mínum x og við viljum ekki særa hana… og minn x vill ekki hana, hann vill mig en vill samt gefa besta vini okkar tíma til að hætta að vera hrifinn af mér :S, sagði hann sko… úff, svo er líka meira vesen bakvið það en ég nenni ekki að segja það líka…
En allaveg þá er bestu vinur okkar ekki hrifinn af mér lengur (ég talaði við hann) en ég veit ekki alveg hvort ég eigi að byrja aftur með mínum x af því að hann fór frekar illa með mig í fyrsta skiptið og ég veit alveg að hann er mikill player… hann er líka BARA graður sko, ég nefninlega veit hvernig hann talar um mig þegar ég er ekki, hann talar víst ekki um annað en brjóstin og rassinn mér… ég veit samt ekki hvort ég eigi að vera sár eða glöð yfir því…

En allavega… ég þarf einhverja hjálp við að ákveða hvort ég eigi að gefa honum annað tækifæri…
Takk fyrirfram!!!


Bætt við 8. júlí 2007 - 01:14
hehe, ég tjékka á þessu :P… tala bara við hann og sé hvað gerist =D

Ég er samt ekkert búnað hitta hann soldið lengi og ég er ekkert viss hvort ég vilji eitthvað vera með honum lengur:S (kanski fell ég samt fyrir honum aftur þegar ég sé hann næst)… var samt að fatta að hann hefur mig svo “í takinu”, og ég þoli það ekki :(