Ég veit ekki hvar þessi þráður á heima en ég setti hann hér í von um að Fróðleiksmoli svari (A)

En já ég og “kærastinn” minn vorum búin að vera saman í 1 og hálft ár svo hættum við saman.
En erum að reyna aftur núna og það gengur bara vel :)
En það er eitt sem er alveg að fara með mig :/
Ég hef ekkert sjálfstraust og hef alveg rosalega minnimáttakennd, mér finnst allar stelpur flottari og sætari en ég :/
Þannig að ég á það til að verða alveg rosalega afbrýðissöm útaf nánast ekki neinu.
Eins og bara það að þegar við vorum ekki saman þá vorum við góðir vinir og ég fékk að nota símann hans, og það var mynd af einhverri geðveikt flottri stelpu á skjánum :( Og ég fékk alveg rosalegan magaverk útaf því :/ En sagði ekki neitt, enda gat ég það ekki því við vorum ekki saman.
En svo byrjuðum við eiginlega saman aftur og þá sagði ég honum að þessi mynd færi svoldið fyror brjóstið á mér :S (ógeðslega leiðinleg)
En hann var svo yndæll og skipti um mynd..en myndin er samt sem áður enþá í símanum :(

Svo vaknaði ég í morgun og fór að hugsa að hann á örugglega alveg helling af myndum af svona stelpum í tölvunni sinni .. og aftur kom þessi ógeðslega vondi magaverkur :(
Þegar við byrjuðum saman fyrst þá átti hann 17GB af klámi og svona myndum .. og ég sagði honum að þetta væri sárt fyrir mig að vita að hann horfi á þær og án efa hugsi vá hvað þessi er flott og ríðileg:/
En hann var aftur svo góður og henti ÖLLU (held ég)
En eins og ég þekki hann þá er hann mjög líklegur að downloada fullt af þessu leið og við hættum saman :/

En spurningin er hvað get ég gert til að hætta að líða svona illa ? Ég þori engann veginn að segja honum þetta því hann gæti kannski hætt með mér :/
Og ég hef breyst töluvert mikið en ég hef ekkert breyst með þetta..ég vil að hann hendi þessu en ég get ekki sagt honum að gera það.
Og hann er orðin miklu þrjóskari en hann var þannig að ef ég mundi segja honum hvernig mér líði þá mundi hann bara ekkert gera í því held ég :/

Þannig að hvað á ég að gera ??
(enginn skítköst takk)