Þú átt mig ein

sú ást er hrein

og ég vil að þú vitir það nú

þú verður mér trú

um öll mín ár


Ó mundu mig

ef mæðir þig

hve lengi er tíminn að líða

og langt er að bíða

uns ég kem heim


Það er svo einfalt

ég eiga vil þig einn

og segðu ekki að ég sé

aðeins of seinn að sjá það

að þetta sé ekki til neins

ég bið

að bólið sé hlýtt

er ég birtist

og stend þér við hlið.

Vilhjálmur Vilhjálmsson




Sú bæn er mín

ég bið til þín

að þú efist ekki um þessi orð

er ég skrifa um borð

ég hugsa heim til þín

ástin mín