Jæja, ég er hérna í smá vanda.
Vinur minn kinnti mig fyrir vini hans sem er mjög næs gaur. Jafngamall, ný kominn með bílpróf, í skóla og allt í lagi þar. hann verður eitthvað hrifinn af mér, sem ég hefði ekki vitað af nema út af því að vinur minn hefur verið að ota því að mér. Svo ég spurði drenginn hvort hann væri hrifinn og hann játti því. Við erum búin að vera hittast og fara á rúntinn og hann og vinkonur mínar komu heim til mín í síðustu viku og við grilluðum , voða næs. Þannig ég er búin að vera að umgangast hann mikið. Vandinn er sá að ég finn ekki fyrir hrifningu frá mér. Við eigum helling sameiginlegt og getum talað heillengi. Ég er soldill útlitsdýrkandi svo það er hamlandi, því ég get ekki sagt að hann sé einhver hot dúddi. Það er eitthvað við hárið á honum, og tennurnar sem fer í mig. Ég veit það á ekki að skipta málið en það böggar mig samt. Ég get ekki varist því. Svo er hann reynslulaus í kynlífinu. Hann hefur hitt pabba minn og pabba leist bara vel á hann. ( ég er búin að vera að umgangast algera aula svo ég vildi bara að hann hitti pabba og vita hvað hann segði um hann, hann hefur meiri reynslu af fólki en ég ).
Kannski er þetta enginn vandi fyrir öðrum, en ég hef aldrei “verið saman”. Ég hef stundað kynlíf, bara tilfinningalaust og það sökkar. En drengurinn virkar ekki kynferðislega á mig. Svo veit ég ekki með tilfinningalegu hliðina , því ég veit ekki hvernig það er. Það sem meira er, þá hef ég verið heit (kynferðislega) fyrir þessum vini mínum í nokkra mánuði, svo það flækir þetta soldið. Þessi nýji drengur er samt eitthvað svo yndislegur að ég gæti aldrei fengið af mér að vera eitthvað leiðinleg við hann.
getur þú eitthvað hjápaðð mér?