Mig vantar hjálp … Ókei, gaur sem ég hef þekkt mjög lengi játaði ást sína á mér nýlega, mér líkar ágætlega við hann og svona og ákveð að gefa honum séns og byrja svo með honum. En já, nú er ég búin að komast að því að það voru mikil mistök. Hann er bara bókstaflega leiðinlegur. Ekkert annað. Ekkert sem kemur á óvart, ég gæti sko sagt ykkur hvað hann segir við hverju sem er.
~
Svo er málið, hann er svo svakalega hrifinn af mér! Ég bara þoli eiginlega ekki tilhugsunina um að vera svona heartbraker. Því að mér þykir alveg vænt um hann og þannig en ég bara höndla það ekki að vera kærastan hans. Svo að ég spyr ykkur, hvernig væri best frá ykkar sjónarhóli að enda þetta samband?
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.