Ég er svona að spá ég hef nánast enga reynslu af samböndum og bara rómantík yfirhöfuð en ég hef verið að velta því fyrir mér hvernig mar fer að því að tjá sig og nálgast stelpuna sem maður er hrifinn af.

Ég er alveg rosalega feiminn og þori varla neinu og hætti alltaf við eins seint og það gerist.

Mig langar bara til að spyrja ykkur með reynsluna hvernig á mar að fara að því að koma í sig kjark til að spyrja stelpur bara t.d. í bíó, út að borða…

Mér finnst ég nú ekkert rosalega sætur stelpur eru alls ekkert slefandi yfir mér en mér finnst samt stundum eins og horft sé á mig með hrifningu í augunum veit ekki hvort það sé bara ímyndun en alltaf gott að lifa á vafasvæðinu en það verður samt leiðinlegt eftir svona mánuð og maður veit ekkert hvernig það á að fara að þessu.

Svo ég spyr ykkur um rómantíska leið til að spyrja stelpu út í bíó sem maður er ekki alltaf að umgangast kanski(er ekki mjög oft með fólkinu í bekknum finnst mjög oft þægilegt að vera bara einn) en þekkir alveg ágætlega samt.