okey ég veit EKKERT hvar ég átti að setja þetta :/ bara fannst allavega hluti af þessum vanlíðan mínum passa við herna svo finnst mér meira um það að fólk sé ekki með eins mikið af skítköstum hérna inná einsog inná öðrum áhugamálum hérna…

(byrja bara alveg frá byrjun)

Allavega sko þannig er mál með vexti að besta vinkona mín var að koma um helgina í rvk til að vera með mér en var samt hjá systur sinni þvi það er svo lítið pláss hérna hjá mér og svona mál.. allavega svo allti góðu með það nema bara þessi vinkona mín er svona solltið æjj veit ekki hvernig ég á að útskýra bara hef tekið eftir þvi uppá síðkastið þegar við höfum verið að tala saman og svona að hún talar endalaust um sjálfa sig og vanamálin hennar svo þegar mér liður illa þá er hún fljót að láta sig hverfa og nennir ekkert að hlusta á mann..:/ frekar fúllt þar sem ég er ALLTAF að hlusta á hana og hjálpa henni.. og svo hún er svona manneskja sem er ALLTAF að skipta um gaura sem hún er “hrifin” af, og það er farið að pirra mig svolítið þvi hún er alltaf að tala endalaust um þann gaur sem hún er hrifin af og eitthvað spyrja mig hvað hún eigi að gera og allt þetta…

En já svo í gær vorum ég og hún búnar að hanga saman eitthvað um daginn og svona fórum i kringluna og allti lagi með það svo var vinur minn búin að bjóða mér í smá svona chillparty hjá vini sínum og ég ætlaði að skella mér,, fekk leifi til að taka þessa vinkonu mína með mér og svo kom kærastinn minn líka með allti lagi með það ,, svo er kærastinn minn og ég búin að vera veik núna nýlega og ekkert alveg orðin hress og við förum semsagt í þetta “party” og svo eftir svona klukkutíma þá ákveðum við að fara ég og kærastinn og ég ætlaði að segja vinkonu minni að koma þvi hún náttúrulega þekkti engan þarna og svona og ég segji svona við hana hey við erum að fara nennum þessu ekki lengur og hún segjir eitthvað æææ nenniru að ná í mig bara á eftir ég hringi bara og ég er fyrst treg til þess en jú segji svo já í lokin og ég og kallinn förum heim bara til mín(“partyið” er ekkert svo langt frá þar sem ég á heima) og svo hringir vinkona mín í mig eftir svona 3 korter og biður mig að koma og ná í sig og ekkert mál með það ég kem og næ í hana en nei þegar ég kem búin að hringja og segji að ég sé komin segjir hún bara já er að koma,.. ég bíð í KORTER fyrir utan eftir henni og það var nú ekki erfitt að komast út sko… voru alls ekki margir þarna og hurðin bara svaladyrnar og ég var náttúrulega orðin aðeins pirruð eftir að hafa þurft að bíða svona eftir henni.. við förum svo heim til mín og ég ætla ná í kallinn og skutla honum bara heim þvi að vinkona mín ætlaði að gista hjá mér um nóttina… við tökum smá rúnnt áður en ég skutla honun heim og þá fer hún að kvelja líka kærastann minn með tuði yfir þessum gaur sem hún er “hrifin” af ( hún er semsagt ekki viss hvort hún sé beint hrifin af honum)… og ekkert mál með það ég skutla kallinum heim,, við förum heim og þá lenti ég í smá óhappi með bílinn minna þannig að ég hef ekkert getað keyrt núna þvi það þarf að laga soltið í honum… en já síðan þetta var hefur þessi vinkona mín ekkert nennt að hitta mig eða tala við mig og er búin að vera bara einsog hún sé hundful við mig … svona einsog hún nenni bara að hanga með mér eða hitta mig þegar ég hef bíl svo ég geti skutlað henni og eitthvað þannig vesen :S

hún kom hérna aðeins áðan til að ná í hálsmen og eitthvað dót sem hún gleymdi og var bara geðveikt fámál og látlaus eitthvað einsog hún nennti ekkert að tala við mig eða neitt:s ég hef ekkert gert til að hún gæti verið sár eða eitthvað þannig útí mig…

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra … er líklegast bara orðið eitthvað rugl:/
And I'd give up forever to touch you Cause I know that you feel me somehow