Þetta var fyrsta alvöru sambandið sem ég var í, og var með honum í 1 ár, 3 mánuði, 1 viku og 4 daga…
ég var alveg búin að gefa honum allt af mér, hann átti mig eina og ég var búin að gefa honum hjartað mitt.
En síðan á þriðjudaginn 27 febrúar segir hann við mig að hann vill ekki vera með mér langur!
Og eina ástæðan var að hann vildi vera einn um tím og vildi ekki vera í föstu samandi. :'(
En hann sagði að við værum í pásu.

Síðan daginn eftir ákváðum við bæði að hittast heima hjá honum og tala um þetta…. þá segir hann að þetta væri bara búið, og það væri engin pása heldur bara alveg hætt saman.

En hann vill að við verðum vinir enþá, sem er í lagi fyrir mig.

Síðan er það ein stelpa sem hann var ógeslega mikið hrifinn af´. það byrjaði sumarið 2005.
Og hann sagði mér þá fyrst þegar við hættum saman að hann væri enn hrifinn af henni, en hafði ekki gert neitt útaf því. Þá var hann búinn að ljúga af mér allann þennann tíma sem við vorum saman að hann var ekki hrifinn af henni!!

En gallinn er að ég er enn ástfangin upp fyrir haus af honum! síðan gerir það svo erfitt að við erum en vinir sem eiga til að kúra saman, faðma hvern annan og þannig.. bara enginn koss og ekkert kynferðis legt.

Síðan fæ ég/sambandið annann séns. En það er bara kannski.
Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég elska hann svo mikið að ég get ekki lifað án hans! mér langar ekki að lifa lengur!

Hvað get ég gert?

Btw. Hann er að verða 17 og ég er 15.