Sko þetta á kannski ekki heima í rómantík en frekar hér en annarstaðar. Ég skrifaði grein herna um daginn hvort eg ætti að reyna að tala við fyrrverandi kærastann minn og einhvað blahh blahh, sumir muna kannski eftir þvi aðrir ekki en jahh…

Við erum orðnir vinir og tölum mikið saman og svona en svo var eg að komast að þvi að báðar stelpurnar sem hann er hrifinn af hafa stungið hann i bakið og mer langar geðveikt til að hjálpa honum þvi hann er svo drulluhrifinn af þeim eða einni allavegna. Ætla ekki að fara segja hvað ein gerði en hin sagðist vera hrifin af honum við hann en annað við vini sína. Hann komst að þvi og varð klikkað sár og fúll enda nýbuin að lenda i veseni með hina stelpuna…

Hvað er hægt að gera..? Plíz ekki segja “Ekki neitt” því það er alltaf einhvað hægt að gera…

Strákar, hvað viljiði að við gerum fyrir ykkur i svona málum ? Eg veit hann vill mina hjálp.
*Á sætustu kanínur í heimi*