Ömm, þannig er það að ég fékk símanúmer hjá stelpu sem ég hitti á árshátið MR á fimmtudaginn. Þegar ég hitti hana þá leit hún bara svona ágætlega út. Hún reyndar var held ég búinn að drekka eitthvað en ég var edrú. Nú er spurningin á ég að hringja eða ekki, sá síðan mynd af henni í gær þar sem hún er ekki eins sæt og hún leit út fyrir að vera á ballinu.
Ætti ég bara að láta kjurrt liggja eða ætti ég að hringja, er nú á því að ég er ekki að leita að neinu, átti upprunalega bara að vera svona eitthvað sem gerðist á ballinu

Var samt að hugsa um að hringja bara svona til að taka stöðu, ekki til leita að neinu eins og ég sagði áðan, en þá sagði einn góður vinur minn að betra væri að sleppa því að hringja en að gefa röng skilaboð.

Bætt við 17. febrúar 2007 - 17:12
Takk fyrir allt, þetta eru hjálpandi comment, þarf ekki fleiri, er búinn að finna út hvað ég geri.
Takk
Blessið þá, er ofsækið yður, blessið þá, en bölvið þeim ekki.