Ansi þung lög sem maður er að hlusta á þessa daganna. Þetta er eitt flottasta lag Bubba seinni ára að mínu mati.
Lagið er tekið af disknum Ást og ég skrifaði textann upp á meðan ég hlustaði á lagið.

Þú deyrð á hverjum degi, sérð nafnið þitt þurkað út.
Það seina sem varð eftir af þér var fingrafar sem slapp við klút.
Þú glímir við drauga hvern einasta dag, hverja dimma nótt.
Þú verst með bókinni góðu, úr hverju horni er að þér sótt.
Inní þér brennur ofsafenginn eldur, þig langar að skaða þann,
Sem hvílir sæll við hlið hennar, óttinn í þér óx og brann.

Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið
Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið

Þú deyrð á hverjum degi, ert orðinn aðeins fjarlægð minning nú.
Það er blóðbragð í kjafti þér, hver ertu og hvert stefnir þú?
Allt þitt er horfið, þér tengist ekki neitt.
Eina stund er þér hrollkalt, hina brennandi heitt.
Póstkassin afneitar þér, dyrabjallan er ekki þín.
Í augum hennar er eitthvað sem þú þekkir ekki, eitthvað sem ljómar og skín.

Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið
Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið

Það geisar stormur í höfði þínu sem hrekur orðin þín burt.
Þig langaði svo heitt að spyrja en þú lést það liggja kjurrt.
Reiði, reiði, hatur, hatur, grimmd, víkiði mér frá!
Ég verð að komast út í ljósið, útí ljósið ég verð að ná.
Það geisar stríð og gömlum vinum er stillt upp við múr.
Þú heldur kjafti þú segir ekkert. Ertu honum eða mér trúr?

Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið
Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið

Það sem var er löngu liðið, köld það segir hún.
Þú hörfar hægt þar til hælar þínir standa fram á blábrún.
Ást þín logar ennþá, yljar öngum, brennir aðeins sárt.
Þú veist, þú veist þú verður að sleppa, er það ekki orðið löngu klárt?
Þú veist hún læsir öllum dyrum, hleypir þér ekki inn.
Felur orðin, felur sárin, engin tár á kinn.

Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið
Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið

Þú veist það sjálfur, þú varst veikur. Þú sást ekkert þá.
Myrkrið fyllti hugann þinn og át þig innann frá.
Bara, bara, ef, ef það dugar ekki til.
Núna ertu aðeins fölur skuggi á bak við hennar þil.
Þó ástin lifir er vonin engin, hún horfir í aðra átt.
Ástin getur kalið hjörtu, og þitt er að verða grátt.

Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið
Þú verður að sleppa, sleppa engin önnur leið út,
ef þú elskar hana þetta mikið

Reiði, reiði, hatur, hatur, grimmd, víkiði mér frá.
Ég verð að komast út í ljósið, út í ljósið ég verð að ná.
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.
Kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til þess að greina þar á milli.