Ást - Ragnheiður Gröndal



Sólin brennir nóttina og nóttin slökkvir dag
Þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag
Þú ert yndið mitt áður og eftir að dagur rís
Svölun í sumarsinns eldi og sólbráð á vetrarinns ís

Svali á sumardögum og sólskin um vetranótt
Þögn í seiðandi selli og söngur ef allt er hljótt
Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn
Þú gafst mér jörðina og grasið og guð á himnum að vin

Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig
Ég fann ei hve lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig
Ég fæddist til ljóssins og lífsinns er lærði ég að unna þér
Og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér

Aldir og andatök hrynja
með undursamlegum nið
Það er ekkert í heiminum öllum
nema eilífið guð og við

Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig
Ég fann ei hve lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig
Ég fæddist til ljóssins og lífsinns er lærði ég að unna þér
ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér


Þetta lag rífur alltaf hjarta mitt, og ég græt svona oftast þegar ég heyri það…..Svo sárar minningar…. :'(
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"