Nú ertu farinn óraveg
í annað land og hjarta
Nú talar þú annað tungumál
Týnt er hárið bjarta

Nú horfi ég ein á hendur tvær
Horfið er allt mitt gaman
Tungan mín og tungan þín
tvinnast þær aftur saman?

Yfir þér er himinn hár
Hér er þykkur tregi
Ástin mín og ástin þín
er hún á batavegi?

Nú ertu farinn óraveg
í annað land og hjarta
Nú talar þú annað tungumál
Týnt er hárið bjarta

Allt er nú skítt og skroppið í smátt
Nú skortir mig ást og hlýju
Lífið mitt og lífið þitt
Lifnar það við að nýju?
Ég finn til, þess vegna er ég