Sælir sælar
Ég er hérna í smá klemmu sem ég gæti gjarna þegið smá hjálp við hvað ég ætti að gera, en málið er svona.
Ég er frekar hrifin af stelpu sem er búin að vera vinkona mín í nokkra mánuði. Það er frekar stutt síðan ég áttaði mig á því að ég var hrifin af henni. Ég spurði líka vinkonu hennar hvort hún væri einhvað hrifin af mér og hún sagði að hún héldi það. Þannig allt gott við það en á sama tíma og ég kynntist henni kynntist ég líka vinum hennar og vinir mínir og hennar urðum öll mjög góðir vinir. En þegar ég kynntist þeim var einn af strákunum hrifin af þessari stelpu og hún var hrifin af honum. En hún er það ekki lengur en ég held hann sé það enn.
Svo mín spurning er hvað á ég að gera. Mig langar að e-ð gerist milli mín og þessarrar stelpu en ég vil ekki særa vin minn sem gæti enn verið hrifin af henni.