Ok, ég er of afbrýðisöm! Dæmi: Ég var að sms-ast við kærastann minn og hann segist vera að spjalla við vinkonu sína (sem er systir vinar hans). Auk þess þar sem að tveir aðrir vinir hans eru þarna en jæja ég fæ alveg svona stingandi tilfinningu í hjartað og verður illt í maganum. Ég verð bara ótrúlega sár og langar að gráta.
Ég vil ekkert vera svona afbrýðisöm en ég get ekki að því gert, hvað á ég að gera?
Auk þess þar sem þetta mun væntanlega pirra kærastann minn til lengdar.

Ég treysti honum samt alveg, ég veit alveg að hann er ekkert að fara að gera eitthvað með þessarri stelpu. En tilhugsunin um að hann sé að spjalla við hana og gæti orðið skotinn er svo ógeðsleg að ég gæti ælt.

DRAMA
takk fyrir mig :P