Er það að vera svona frekar tilfinninganæmur strákur hommalegt? Hrindir það frá sér stelpum?

Hvort er vinsælla hjá stelpum að vera með frekar tilfinninganæmum strák eða frekar köldum töffara?

Ég er ekkert endilega að segja að ég sé einhver dramadrottning… Bara spá hvort að maður ætti að tjá allar sínar tilfinningar eða vera bara kaldur og lokaður?

Ég er að reyna að hefja samband með stelpu og vil helst vita hvað ykkur stelpunum hérna á huga finnst um þetta mál áður en ég fer að gera einhver klaufamistök.

Fyrirfram þakkir, Sindri.