Alltaf þegar ég hugsa um hana fæ ég þessa tilfinningu, svona sting í magann, svona váá erfitt að lýsa þessu…alltaf þegar ég sé hana þá kemur þessi sama tilfinning, alltaf þegar ég sé mynd af henni, þetta er bara svona þrá…ég veit að ég er hrifinn af þessari stelpu, en ég hef verið hrifinn af stelpu áður, en aldrei var þetta svona. Þetta er ólýsanleg tilfinning. Ég mundi gera allt til að vera með henni, hún er auðvitað fallegust í heimi, og er bara ótrúlega æðisleg í alla staði.

Er þetta bara hrifning eða hvernig mynduð þið lýsa þessu?