Þessi pæling kom upp í umræðu um daginn þar sem lítil saga sem hefði átt að vera voða einföld var sögð enda eitthvað sem er voða algengt hérlendis.

Tveir fullir krakkar, áhváðu að hafa pínu gaman, fóru heim til annars og sváfu þar saman.

Eins og ég sagði þá hefði þessi saga átt að vera voða einföld saga, en málið flæktist aðeins þegar það kom í ljós að gaurinn var á föstu. Það hefði í sjálfu sér eitt verið í lagi þar sem hvorug stelpan vissi af hinni og málið hefði getað gleymst, fólk gerir jú mistök. En gaurinn hann kunni ekki að þegja, svo það fréttu þetta allir.

Svo voru allir að spyrja stelpuna hvort hún sægji ekki eftir þessu, ok hann var ekki fallegasti gaurinn, en hún fór ekki eftir útliti svo hún sá ekki eftir neinu, þar til einhver áhvað að segja henni sannleikan hálfu ári seinna =S

Þ.e. að hann var á föstu og eining orðróminn um að hann hefi verið hreinn, þá fattaði hún loksinns hversvegna allir voru að spyrja hvort hún sæi eftir þessu og bíður en eftir að fatta hvaða stelpa hatar hana, en líklega hefur hann verið hreinskilinn með það og sagt eins og er að hún hafi ekki vitað neitt.

En það sem ég skil ekki er hvernig datt honum í hug að fara að segja fólki frá þessu? Fyllerís einnar nætur gaman og engin vitni, þetta hefði ekki frést, nema þar sem hann hélt ekki kjafti. Reyndar gæti það spilað inn í að hann hafi bara verið svona feginn að missa sveindóminn ef það var málið, en samt bara kæruleysi.

Fólk sem er yfirhöfuð að halda framhjá vill það láta komast upp um sig? Er þetta bara heimska í þeim eða bara hræsni?

…og b.t.w. ég er ekki að alhæfaneitt, ég veit vel að þetta eru bara sumir strákar og ábyggilega sumar stelpur líka, en þar sem ég hef engar reynslu af einnar nætur gamni með stelpu þá læt ég nægja að minnast á strákana og já stelpan í “sögunni” er ég ef einhver náði því ekki.

Bætt við 12. desember 2006 - 23:40
Sorry að það kom ekki fram í korknum en ég er virkilega á móti framhjáhaldi, hefði ekki gert neitt með honum ef ég hefði vitað þetta en ég var bara að hneykslast á hegðun gaursinns, einhverjum, m.ö.o. Fróðleiksmola fannst ég vera að réttlæta gjörðir hans en það var alls ekki meiningin, bara svo það sé á hreinu =P
Veistu hver ég er? Pff, stalker.. PM me?