sko ég ætla byrja þetta bara alveg frá bryjun.

Þannig er mál með vexti að ég bjó á norðurlandinu vegna skólagöngu! allavega svo flyt ég suður á höfuðborgarsvæðið, og einn góður vinur minn fyrir norðann ,en ég er ekkert hrifin af honum eða neitt þannig, enda er hann líka með stelpu…

Gella þessa vinar míns býr líka hérna fyrir sunnan, og á einhverjum tímapunkti misskildi hún eitthvað og hellt ég væri að reyna við gaurinn sinn og það varð eitthvað geðveikt vesen í kringum það, og mér og henni líkaði mjög illa við hvor aðra.

Svo kom það uppá að afi minn dó:( og ég er að tala við þennan vin minn og hann við gelluna sína, og hún skilar samúðakveðju (erum semsagt að tala á msn) og þegar ég ætla að fara svar þá hringir síminn minn og ég næ ekki að svara strax.. þá brjálast þessi vinur minn og bara drullar alveg yfir mig þvi ég gat ekki sýnt þá kurteisi að segja takk:S ég sagði honum af hverju ég hefði ekki getað svarað strax en hann bara lætur sig ekki svo ég segji honum að adda gellunni inná og segji við hana takk og byðst afsökunar á þvi ef hún hafi haldið einhvertíman að ég væri að reyna stela honum fra´henni…

Svo spyr hún mig hvort mér sé ekki sama þó hún addi mér og ekkert mál með það og við förum bara að spjalla saman og erum alveg sáttar þá og ekkert vesen í gangi:) erum mjög góðar vinkonur núna..

En svo er það leiðindar vesen komið í gang að þessi vinur minn er bara hættu að tala við mig drullar yfir mig og er meira segja búin að blocka mig:S

Svo í gærkveldi þá er ég og gellan hans að hanga saman bara og erum hjá einhverjum vinum og svona:) og hann er bara með eitthvað helv. vesen allt heila kvöldið:S bara eitthvað að tuða ætlaru að vera úti í alla nótt og fer bara í fýlu útaf öllu….

Og þar sem ég þekkji nú þau bæði og skil bæði sjónarhorn þá finnst mér hann vera fara illa með hana en ekki hún með hann einsog ég hellt alltaf þvi hann lét það allta líta út einsog hún færi pínu illa með hann…

Hún sko má ekki hanga með vinum sínum sem eru strákar bara því þá verður hann svo fúll við hana og heldur að allir séu að reyna við hana:S sure skil alveg að hann vilji ekki missa hana en það er einsog hann treysti henni ekki jack shit:S og hún hefur ekki gert neitt til þess að hann ætti ekki að treysta henni…

En já æjj bara vesenið er það að hún er kannski að fara flytja til hans.. og mér þykjir alveg rosalega vænt um hana og finnst svo sárt hvernig hann þessi fyrrv. vinur minn er að fara með hana þvi ég þekki hann alveg og hann er sko ekki eins góður gaur og maður hellt! og svo er hún já einsog ég sagði að flytja kannski til hans:S og frá öllu sem hún þekkir.. en ætli hún verði ekki bara að brenna sig á þessu því miður :(

æjj sorry röflið er bara alveg í ruglinu útaf þessu veseni sem ég er lent inní:S



Bætt við 7. desember 2006 - 14:18
æjj gleymdi líka að segja eitt.. þessi vinur minn þegar ég og hann vorum vinir… þá var einsog alltaf þegar það var eitthvað í ólagi hjá honum og henni þá var ég alltaf best og alveg hægt að tala við mig á fullu útaf því svo þegar það var allti lagi hjá þeim var einsog ég væri bara ekki til:S

svo hefur hann líka verið að reyna aðeins við mig og svona vesen og fyrir ekkert svo löngu þá ætlaði hann að hætta með henni og var alveg bara að trillast á henni og mér finnst svo óþægilegt að vita þetta því ég þori ekkert að segja henni þetta þ´vi hún er svona blinda týpan og gæti haldið að ég sé bara að reyna láta þaui hætta saman og eitthvað vesen:s


en er hætt núna:$
And I'd give up forever to touch you Cause I know that you feel me somehow