Ókei, málið er svona að ég er með stelpu sem ég elska meira en allt. Við smellpössum saman og hún er allt sem ég gæti nokkurtíman óskað mér.

En vandamálið er að stelpan hefur verið kynferðislega með mörgum strákum miðað við aldur (Við erum bæði kringum 16) og mér finnst það erfitt þarsem ég hef sjálfur ekki verið mikið fyrir það að fara alla leið í partíum og svona.

Hún elskar mig líka óeðlilega mikið og ég VEIT það, en SAMT á ég svo erfitt með að treysta henni. Ég veit ekki hvort að það sé út af ofantöldu.

Þegar hún fer eitthvert er ALLTAF einhverjir gæjar alveg upp í langt yfir tvítugt að reyna við hana. Á okkar fyrsta skipti niður í bæ var hún að daðra við alla en þá höfðum við bara verið saman í svona viku og hún sér svo mikið eftir því. Hún á við drykkjuvandamál að stríða en hún er hætt að drekka núna.

Hefur einhver hugmynd um hvað maður getur gert til þess að treysta stelpunni sinni betur?
Moderator @ /fjarmal & /romantik.