Ég kynntist einni stelpu á netinu. Náðum mjög vel saman.
Hittumst nokkrum sinnum og var það unaðslegasti tími lífs míns.
En ég vissi fyrir að hún var með gæja, en þau voru í pásu og hún vissi ekkert hvert hún átti að snúa sér og hvað átti að gera.

Svo er manni sagt að ég eigi góðan sjens í hana, hún fíli mig, finnist ég vera æðislegur, sætur og góður.
Svo fæ ég þær fréttir 2 mán síðan að ég er ekki hennar týpa, hún vilji bara vera vinkona mín þegar við hittumst og stuff. Og að hún ætli ekki að hætta með gæjanum sem hún var svo óhamingjusöm með

Mig langar að hitta hana og þykja vænt um hana, en það verður erfitt þar sem ég get ekki litið á hana sem vin, ég get bara litið á hana sem eitthvað meira, eitthvað sem ég mun örugglega ekki fá :(

Er nú mjög sár og sorgmæddur eftir þessa rimmu. Þó ég hefði átt að búast við þessu eiginlega.

Þú veist hver þú ert, ég sakna þín, ég sakna raddar þinnar, sakna hvernig þú hlærð og hvernig þú talar.

Mér þykir vænt um þig, meira en allt :/