Ok, þannig er mál með vexti, að ég hef verið með nokkrum stelpum og allt í góðu með það, finn mér áhugaverðar manneskjur sem mér lýst vel á.

Flestir vinir/vinkonur í kringum mig tala um að finna fiðring, eða einhverja álíka tilfinningu þegar þær hugsa um eða sjá þá manneskju sem þær eru að seilast eftir. Þetta hefur aldrei gerst hjá mér, jú ég verð glaður þegar ég hugsa um þær, en fæ ekki neina svona yfirþyrmandi tilfinningu eins og ég sé með fiðrildi í maganum, eða fara niður í rússíbana, eða well… ég finn bara ekki neitt sérstakt. Bara meiri gleði

Hvað er það sem þið finnið þegar þið eruð í kringum þær manneskjur sem þið haldið að séu réttar fyrir ykkur?